Fótbolti

Alfreð í byrjunarliði Sociedad í fyrsta sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason er í byrjunarliði Real Sociedad í fyrsta sinn í kvöld í leik í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta en Alfreð er fremsti maður þegar Real Sociedad tekur á móti Getafe í lokaumferð áttundu umferðar.

Alfreð hefur spilað þrjá síðustu leiki Real Sociedad en hefur komið inná sem varamaður í þeim öllum. Alfreð hefur spilað samtals 52 mínútur í þessum leikjum en lið Real Sociedad hefur aðeins skoraði í þeim eitt mark.

Alfreð missti af fyrstu fjórum leikjum Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildarinnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í Evrópuleik en Alfreð fór þá úr axlarlið.

Alfreð kemur inn í liðið fyrir spænska framherjann Imanol Agirretxe sem hefur aðeins skorað 1 mark í 7 leikjum (á 502 mínútum) í spænsku deildinni á þessu tímabili.

Leikur Real Sociedad og Getafe hefst klukkan 18.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×