Fótbolti

Alfreð hetja Augsburg | Sjáðu þegar hann jafnar í uppbótartíma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð í leik með Augsburg.
Alfreð í leik með Augsburg. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason var hetja Augsburg sem náði í stig gegn Darmstadt þegar liðin mættust í miklum botnslag.

Alfreð jafnaði metin í uppbótartíma úr vítaspyrnu, 2-2, og náði í gríðarlega mikilvægt stig í algjörum sex stiga leik.

Bæði lið eru því enn með jafnmörg stig í deildinni og eru rétt fyrir ofan fallsvæðið. Hér að neðan má sjá úrslit dagsins í þýska boltanum og mark Alfreðs í leik Augsburg og Darmstadt.

Borussia Moenchengladbach 3 - 0 Eintracht Frankfurt

Darmstadt 2 - 2 Augsburg

Hannover 96 0 - 2 Köln

Hoffenheim 1 - 0 Wolfsburg

Ingolstadt 3 - 3 VfB Stuttgart




Fleiri fréttir

Sjá meira


×