Fótbolti

Alfreð hélt upp á nýja samninginn með marki | Sjáðu markið

Mark Alfreðs Finnbogasonar dugði ekki til sigurs fyrir Augsburg gegn Hamburger SV í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Alfreð skoraði laglegt mark á elleftu mínútu leiksins, en Hamburg snéri við taflinu og vann 3-1 sigur.

Augsburg endar því í tólfta sæti deildarinnar með 38 stig, en Alfreð skrifaði í dag undir nýjan samning við félagið. HSV endar í því tíunda.

Meistararnir í Bayern Munchen unnu öruggan 3-1 sigur á Hannover 96 í dag. Mario Götze skoraði tvö og Robert Lewandowski eitt.

Dortmund gerði 2-2 jafntefli við Köln á heimaelli. Gonzalo Castro og Marco Reus skoruðu mörk Dortmund, en þeir enduðu í öðru sætinu, átta stigum á eftir Bayern Munchen.

Samherjar Arons Jóhannssonar hjá Werder Bremen björguðu sér í dag frá falli með 1-0 sigri á Eintracht Frankfurt, en Aron hefur lítið sem ekkert spilað vegna meiðsla.

Frankfurt, VfB Stuttgart og Hannover 96 falla niður um deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×