Alfreð ekki í hóp þegar Augsburg gerði jafntefli | Jafnt hjá Bayern 15. október 2016 15:29 Robben skoraði fyrra mark Bayern gegn Frankfurt. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason var ekki í leikmannahóp FC Augsburg sem mætti Schalke á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. FC Bayern gerði jafntefli við Frankfurt á útivelli þar sem heimamenn náðu að jafna einum færri. Alfreð glímir við smávægileg meiðsli samkvæmt þýskum fjölmiðlum en hann er nýkominn aftur til Þýskalands eftir velheppnaða landsliðsferð til Íslands þar sem hann skoraði bæði gegn Finnlandi og Tyrklandi. Augsburg var í 12.sæti deildarinnar fyrir leikinn í dag en Schalke í 15.sæti. Leikurinn var markalaus lengi framan af en um miðjan síðari hálfleik kom Nabil Bentaleb gestunum yfir. Daniel Baier jafnaði fyrir Augsburg á 77.mínútu og þar við sat. Frankfurt náði óvæntu jafntefli á heimavelli sínum gegn meisturum FC Bayern. Arjen Robben kom Bæjurum yfir á 10.mínútu en Ungverjinn Szabolcs Husztli jafnaði rétt fyrir leikhlé. Joshua Kimmich kom Bayern í 2-1 á 62.mínútu og markaskorarinn Husztli fékk sitt annað gula spjald örfáum mínútum síðar. Einum færri tókst heimamönnum að jafna metin með marki frá Marco Fabian á 78.mínútu. Bayern tókst ekki að bæta við þriðja markinu og 2-2 jafntefli því niðurstaðan. Bayern heldur toppsætinu með 17 stig og er tveimur stigum á undan Köln sem situr í 2.sætinu. Frankfurt er í 7.sæti deildarinnar.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Þýski boltinn Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Brighton - Man. City | Meistararnir verða að vinna Í beinni: Keflavík - Breiðablik | Blikar fara suður með sjó KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Sjá meira