Fótbolti

Alfreð á stall með Eiði Smára

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Augsburg í gær.
Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Augsburg í gær. vísir/getty
Alfreð Finnbogason opnaði markareikninginn sinn fyrir þýska 1. deildar liðið FC Augsburg í gær þegar hann skoraði fyrra mark liðsins í 2-2 jafntefli á heimavelli gegn Borussia Mönchengladbach.

Eftir 23 umferðir af 34 er Augsburg í þrettán sæti deildarinnar með 25 stig líkt og nýliðar Darmstad, en Alfreð og félagar eru fjórum stigum frá fallsvæðinu.

Markið í gær var númer 101 í efstu deild hjá Alfreð á ferlinum og þá var hann að skora í efstu deild í sjöunda landinu. Með því jafnaði hann met Eiðs Smára Guðjohnsen. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Alfreð opnar markareikninginn í Þýskalandi:
Alfreð hefur á sínum ferli skorað fyrir Breiðablik í efstu deild á Íslandi, Lokeren í Belgíu, Helsinborg í Svíþjóð, Heerenveen í Hollandi, Real Sociedad á Spáni, Olympiacos í Grikklandi og nú Augsburg í Þýskalandi.

Það sem gerir afrek Alfreðs enn merkilegra er að hann er búinn að skora í efstu deild í sjö löndum aðeins 27 ára gamall. Hann er tíu árum yngri en Eiður þegar hann skoraði í sjöunda landinu, Kína, í september á síðasta ári.

Eiður Smári hefur skorað í efstu deild fyrir Val á Íslandi, PSV Eindhoven í Hollandi, Chelsea og Tottenham á Englandi, Barcelona á Spáni, AEK í Grikklandi, Cercle og Club Brugge í Belgíu og Shijiazhuang Ever Bright í Kína.

Eiður Smári getur aftur á móti bætt áttunda landinu í sarpinn í mars þegar hann hefur leik með sínu nýja liði Molde í norsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×