Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2012 21:15 Nordic Photos / Getty Images
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þegar tækifæri gefst til að forðast það að brenna út í starfinu. Alfreð hefur náð frábærum árangri með Kiel. Liðið hefur þegar tryggt sér sigur í þýsku úrvalsdeildinni sem og bikarkeppninni og er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu. Kiel hefur unnið alla deildarleiki sína í vetur og keppir Alfreð að því að verða fyrsti þjálfarinn frá upphafi til að fara í gegnum heilt tímabil í Þýskalandi með 100 prósenta árangur. Þar að auki undirbýr hann lið sitt af kappi fyrir úrslitahelgina í Meistaradeildina sem fer fram í Köln síðar í mánuðinum. „Ég er alltaf algerlega búinn á því þegar að tímabilið klárast," sagði Alfreð á ráðstefnu um íþróttasálfræði í Þýskalandi. „Þegar svo mikið er um að vera gefur maður sér aldrei tíma til að njóta neins." Alfreð hefur nýtt frítímann sinn vel og vill þá helst fá að vera í friði í heimili sínu í Þýskalandi. „Þá slekk ég á gemsanum í 3-4 vikur og sinni garðvinnu á meðan. Það hleður rafhlöðurnar."
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira