Fótbolti

Alfreð: England myndi henta Kolbeini vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð fagnar marki í leik með Heerenveen á síðustu leiktíð.
Alfreð fagnar marki í leik með Heerenveen á síðustu leiktíð. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason segir að Kolbeinn Sigþórsson, félagi sinn í íslenska landsliðinu, þurfi að fara til félags þar sem honum mun líða vel.

Alfreð skoraði um helgina sitt fyrsta mark fyrir Real Sociedad í æfingaleik gegn Ajax en hann þekkir vel til síðarnefnda liðsins eftir að hafa spilað með Heerenveen undanfarin tvö ár.

Real Sociedad vann leikinn, 3-1, en alls skoraði Alfreð fimm sinnum gegn Ajax er hann lék í hollensku deildinni.

„Það mætti segja að miðað við árangurinn undanfarin ár þá sé Ajax einn af mínum uppáhalds andstæðingum,“ sagði Kolbeinn í samtali við hollenska miðla um helgina.

Kolbeinn er sagður á förum frá Ajax en hann hefur verið sterklega orðaður við QPR í Englandi. „Hann þarf að fara til liðs þar sem honum líður vel. Ég held að hann myndi finna sig vel í ensku deildinni,“ sagði Alfreð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×