Alfreð, Aron og Guðjón Valur þýskir meistarar með Kiel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2013 19:41 Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fimm stiga forskot á Löwen sem er í 2. sætinu en Löwen-liðið á aðeins tvo leiki eftir og getur því ekki náð Kiel. Það var ekki að sjá að þarna væru tvö efstu lið deildarinnar að mætast. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk í leiknum og Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk. Guðjón Valur varð í kvöld þýskur meistari í fyrsta sinn á ferlinum en Aron var að vinna titilinn í þriðja sinn. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö mörk fyrir Löwen en Alexander Petersson komst ekki á blað. Kiel hefur unnið 27 af 31 leik sínum á leiktíðinni og þetta var sjötti deildarsigur liðsins í röð. Kiel vann einnig þýska bikarinn og er komið í úrslit í Meistaradeildinni. Það stefnir því í enn eitt frábært tímabil hjá Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans. Alfreð var búinn að kveikja vel í sínum mönnum því Kiel gaf tóninn strax í byrjun og komst í 3-0 á fyrstu sex mínútunum. Kiel fór illa með Löwen-liðið allan hálfleikinn og bauð upp á kennslustund í handbolta. Kiel náði mest ellefu marka forskot í seinni hálfeik en Rhein-Neckar Löwen lagaði stöðuna á lokakaflanum. Aron Pálmarsson skoraði fyrsta mark leiksins en Guðjón Valur Sigurðsson var með þrjú mörk í fyrri hálfleiknum sem Kiel vann 15-7. Aron bætti einu marki við í seinni hálfleik en þá fékk Guðjón Valur ekkert að spila. Marko Vujin var markahæstur hjá Kiel með sex mörk. Kiel er að vinna titilinn annað árið og í fjórða sinn undir stjórn Alfreðs sem tók við liðinu sumarið 2008. Kiel hefur alls orðið þýskur meistari 18 sinnum þar af fimmtán sinnum frá árinu 1994.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira