Handbolti

Alexander spilar bara fimmtán mínútur í leik á EM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alexander Petersson tekur því rólega á æfingu íslenska liðsins í gær.
Alexander Petersson tekur því rólega á æfingu íslenska liðsins í gær. vísir/stefán
Alexander Petersson verður með strákunum okkar á EM í Póllandi sem hefst í næstu viku en hann getur þó ekki beitt sér að fullu.

Þessi magnaða örvhenta skytta sem hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu um árabil hefur ekki verið verkjalaus síðan á EM 2010 þegar Ísland vann brons í Austurríki.

Öxlin hefur einnig verið að plaga Alexander síðustu ár og hann hefur einfaldlega þurft að venjast því að spila með verki í öxlinni.

„Ég hef þurft að stýra álaginu. Taka kannski fimm til sex skot í leik í staðinn fyrir að taka fimmtán. Ég er ekki ungur lengur,“ segir hinn 35 ára gamli Alexander í viðtali við Fréttablaðið sem birtist í morgun.

Ekki áttu margir von á því að Alexander gæfi kost á sér á EM í Póllandi. Hann verður til staðar en þó í mun minna hlutverki en áður.

„Við erum að tala núna um að láta mig spila í hverjum einasta leik en ekki mikið samt. Ætli ég spili ekki svona fimmtán mínútur í leik. Kannski stundum bara vörn en við verðum að sjá til hvernig þetta þróast hjá okkur,“ segir Alexander Petersson.

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×