Handbolti

Alexander markahæstur í sigri Löwen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenski landsliðsmaðurinn var í stuði gegn Göppingen.
Íslenski landsliðsmaðurinn var í stuði gegn Göppingen. Vísir/Getty
Alexander Petersson skoraði sex mörk þegar Rhein-Neckar Löwen vann sex marka sigur, 26-20, á Göppingegn á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Leikurinn var jafn framan af, en staðan í hálfleik var 10-9, Ljónunum í vil. Alexander og félagar sigldu svo fram úr um miðjan seinni hálfleik og unnu að lokum sex marka sigur.

Alexander var markahæstur í liði Löwen, en hægri hornamaðurinn Patrick Groetzki kom næstur með fimm mörk. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö mörk. Zarko Sesum, fyrrverandi leikmaður Löwen, var markahæstur í liði Göppingen með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×