Handbolti

Alexander markahæstur í bikarsigri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alexander Petersson skoraði sex.
Alexander Petersson skoraði sex. vísir/getty
Þýskalandsmeistarar Rhein-Neckar Löwen eru komnir áfram í þýska bikarnum í handbolta eftir 29-23 útisigur gegn Erlangen í kvöld.

Ljónin frá Mannheim voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-11, og innbyrtu á endanum tiltölulega þægilegan sex marka sigur.

Alexander Petersson var markahæstur Löwen með sex mörk úr níu skotum en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk úr sex skotum. Miðið ekki alveg nógu vel stillt hjá landsliðsfyrirliðanum.

Í gær komst Kiel einnig áfram í bikarnum en Íslendingaliðin Bergischer og Füchse Berlín féllu úr leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×