Handbolti

Alexander markahæstur er Löwen komst á toppinn

Alexander fagnar í leik með Löwen.
Alexander fagnar í leik með Löwen. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen komst á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Löwen vann þá auðveldan útisigur, 28-39, á Lemgo eftir að hafa leitt 13-22 í hálfleik.

Alexander Petersson fór á kostum og var markahæstur allra á vellinum með sjö mörk. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt mark fyrir Löwen.

Löwen er með eins stigs forskot á Kiel en Kiel á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×