Handbolti

Alexander hinn hressasti þegar Löwen kynnti nýja búninga

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alexander var hress á leikmannakynningu Ljónanna.
Alexander var hress á leikmannakynningu Ljónanna. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen kynnti á dögunum nýja búninga liðsins, en stuðningsmenn fengu að koma og heilsa upp á leikmenn og fá eiginhandaráritanir.

Alexander Petersson var mættur og var hinn hressasti að því fram kemur í þessu myndbandi. Stefán Rafn Sigurmannsson er einnig á mála hjá Löwen, en hann var ekki sjáanlegur í myndbandinu.

Löwen lenti í öðru sæti á síðustu leiktíð, en þeir enduðu tveimur stigum á eftir Þýskalandsmeisturunum í Kiel. Þeir töpuðu svo á dramatískan hátt í undaúrslitum gegn Flensburg í þýska bikarnum.

Myndbandið má sjá hér að neðan, en Alexander var í banastuði þegar hann var kynntur til leiks á sviðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×