Glamour

Alexa Chung verður listrænn stjórnandi UGG

Ritstjórn skrifar
Alexa Chung er þekkt fyrir að vera mikil smekkmanneskja.
Alexa Chung er þekkt fyrir að vera mikil smekkmanneskja. Mynd/Getty
Breska fyrirsætan og þáttastjórnandinn Alexa Chung hefur verið ráðin sem listrænn stjórnandi skófyrirtækisins UGG. Skórnir, sem eru úr lambaskinni og afar hlýir, eru þekktir út um allan heim fyrir einstakt útlit sitt og hafa seinustu ár ekki þótt neitt sérstaklega flottir. 

UGG og Alexa ætla hins vegar að breyta þessu með því að einblína markaðssetningu sinni á ungar konur í þeirri von um að þykja aftur flottir. 

Fyrsta auglýsingaherferð frá samstarfinu hefur litið dagsins ljós en Alexa Chung kynnti fréttirnar á Instagram síðunni sinni á dögunum. 






×