Fótbolti

Aleksandra passar upp á stelpurnar okkar

Kolbeinn Tumi Daðason í Rotterdam skrifar
Aleksandra stendur vaktina hjá kvennalandsliðinu í Hollandi. Hér fylgist hún með æfingu stelpnanna á dögunum.
Aleksandra stendur vaktina hjá kvennalandsliðinu í Hollandi. Hér fylgist hún með æfingu stelpnanna á dögunum. Vísir/Tom
Aleksandra Janina Wójtowicz er ekki þekktasta nafnið í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta. Eðlilega, enda spilar hún ekki með því þótt óhætt sé að segja að hún gegni mikilvægu hlutverki í EM hópnum úti í Hollandi. 

Aleksandra hefur fylgt stelpunum okkar eftir af þeirri ástæðu að hún er öryggisfulltrúi landsliðsins. Hún er pólsk að uppruna en talar reiprennandi íslensku. Hún hefur búið á Íslandi í yfir áratug.

„Hlutverk okkar er að tryggja öryggi allsl hópsins, leikmanna, þjálfara og starfsmanna,“ segir Aleksandra í samtali við Vísi. Víðir Reynisson, verkefnastjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi sem áður starfaði hjá almannavörnum, hefur gegnt þessu hlutverki hjá landsliðum Íslands undanfarin misseri. 

„Víðir er algjör meistari,“ segir Aleksandra. Víðir stóð vaktina í kringum fyrsta leikinn gegn Frakklandi en svo kom Aleksandra út til Hollands og þau unnu saman í kringum leikinn gegn Sviss. Nú stendur Aleksandra vaktina ein.

 

Víðir Reynisson, til hægri, ásamt landsliðskonunum Sif Atladóttur og Glódísi Perlu Viggósdóttur fyrir blaðamannafund í aðdraganda leiksins gegn Sviss í Doetinchem.Vísir/Kolbeinn Tumi
„Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir Aleksandra sem starfar sem lögreglufulltrúi hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra. Ekkert hafi komið upp. „Ekki hingað til.“

Hún segist hafa áhuga á fótboltanum en svo sé um krefjandi og skemmtilegt verkefni að ræða. Hún sé vön því að vinna í samvinnu við erlend lögregluyfirvöld hjá alþjóðadeildinni. Hér úti vinnur hún náið með lögregluyfirvöldum þar sem er metið hvort grípa þurfi til aðgerða í kringum leikina sjálfa.

Hún segir gaman að vinna í kringum stelpurnar og það sé ekkert vesen á þeim.

„Þær eru frábærar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×