Lífið

Alec Baldwin hæddist að öllu sem Trump hefur gert undanfarnar vikur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Baldwin í gervi Trump.
Baldwin í gervi Trump. Vísir
Bandaríski leikarinn Alec Baldwin hefur gert það að sérgrein sinni að fara í gervi Donald Trump Bandaríkjaforseta og hæðast að honum. Fyrsti þáttur Saturday Night Live í tvær vikur var sýndur í gær og fór Baldwin á kostum.

Á þessum vikum hafði Trump heldur betur látið til sín taka. Má þar nefna umdeilda tilskipun Trump um ferðabann íbúa sjö ríkja til Bandaríkjanna, símtöl hans við aðra þjóðarleiðtoga, orðaskak hans við Arnold Schwarzenegger svo dæmi séu tekin.

Allt þetta og meira til var tekið fyrir af Baldwin í Saturday Night Live um helgina en innslagið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Alec Baldwin heldur áfram að gera stólpagrín að Trump

Í gær birti Baldwin mynd á Instagram þar sem hann er með sams konar derhúfu og Trump hefur ítrekað látið sjá sig með og prýðir kosningaslagorð hans. Á derhúfu Baldwin er þó sú breyting á að slagorði Trump hefur verið snarað yfir á rússnesku en með því er Baldwin án efa að vísa í meint afskipti Rússlands að forsetakosningunum í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×