Lífið

Aldurinn hefur farið vel með Tag úr Friends - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tag lék nokkuð stórt hlutverk í þáttunum í einni þáttaröð.
Tag lék nokkuð stórt hlutverk í þáttunum í einni þáttaröð. vísir
Gamanþættirnir Friends njóta ennþá gríðarlegrar vinsældra og horfa milljónir manna á þættina daglega.

Friends voru framleiddir á árunum 1994-2004 og þekkja Íslendingar þættina vel. Það þekkja margir þá list að vitna í Friends og sumir hverjir muna nánast orðrétt hvernig hver einasti þáttur fór fram.

Margir muna væntanlega eftir Tag sem var um tíma kærasti Rachel en hann var þó nokkrum árum yngri en hún. Mikið var því gert grín að henni fyrir að eiga kærasta sem væri svona ungur.

Eddie Cahill fór með hlutverk Tag og kom hann fram í sjö þáttum árið 2000 og 2001. Hann er í dag 38 ára og hefur eðlilega þroskast töluvert á þessum 15 árum en hér að neðan má sjá hvernig hann lítur út í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×