Innlent

Aldrei verið fleiri vændiskaupendur

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Samtals 249 vændismál eru skráð á síðustu fjórum árum hjá ríkislögreglustjóranum.
Samtals 249 vændismál eru skráð á síðustu fjórum árum hjá ríkislögreglustjóranum.
Mikil fjölgun vændismála varð árið 2013 og voru samtals 249 skráð mál hjá ríkislögreglustjóra á árinu. Árið áður voru málin 24 og árið 2011 voru þau 13 samtals. Tölurnar sýna fjölda brota sem hafa komið á borð embættisins vegna kaupa á vændi og hafa vændiskaupendur aldrei verið fleiri.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir einstaklinga sem selja kynlífsþjónustu ekki vera marga en vændiskaupendur hafa aldrei verið fleiri. Ástæðan fyrir mikilli aukningu er að árið 2013 var gert átak í að upplýsa vændiskaup á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Meiri mannskapur, tími og fjármagn var sett í málaflokkinn en nú er átakinu lokið.

„Þessu er ekki sinnt af sama krafti og áður. Þetta er alltaf spurning um forgangsröðun og fjármagn.“

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, segir átak í vændiskaupamálum lokið.vísir/anton brink
Refsiramminn fyrir vændiskaup er eitt ár í fangelsi eða sektir og segir Friðrik Smári að langflestum þessara mála ljúki með sektum. Einnig að þegar refsiramminn er svo lítill geti lögreglan ekki beitt öllum ráðum við rannsóknir, eins og hlerunum.

Brotaþolar í vændiskaupamálum eru þrjátíu talsins á tímabilinu 2011 til apríl 2014. Af þeim eru konur 21 og helmingur þeirra er þrjátíu ára og eldri. 

„Það eru ekki barnungar stúlkur sem selja kynlífsþjónustuna. Yfirleitt eru þetta fullorðnar konur. Rannsókn lögreglu beinist þó fyrst og fremst að kaupendum,“ segir Friðrik en bætir við að ef grunur leikur á mansali sé konunum beint rétta leið.

Ef ekki er grunur um mansal fer ekkert sérstakt ferli í gang til að aðstoða brotaþola í vændiskaupamálum.

„Yfirleitt er ekki mikið um samstarfsvilja og brotaþolar þurfa að leita sér hjálpar hjá félagslega kerfinu að eigin frumkvæði.“ 

Athvarfi fyrir brotaþola vændis lokað

Kristínarhúsi, eina sértæka úrræðinu fyrir brotaþola vændis, var lokað í janúar síðastliðnum. Athvarfið var tilraunaverkefni til tveggja ára og á þeim tíma höfðu 27 konur og átta börn þeirra dvalið í húsinu vegna mansals eða vændis. 



Athvarfinu var ætlað að gefa konum sem voru á leið úr vændi eða mansali tækifæri, rými og næði til að byggja sig upp á nýjan leik.

Í svari Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur um lokun Kristínarhúss segir að lögregla og félagsþjónustan finni ekki fyrir lokun hússins. Það kemur þó einnig fram að ekki sé lengur fyrir hendi öruggt skjól fyrir mansalsfórnarlömb og því sé erfitt að vinna traust fórnarlambanna sem geti haft skaðleg áhrif á bata þeirra og rannsókn máls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×