Innlent

Aldrei fleiri veitingastaðir opnir um áramót

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
33 veitingastaðir í Reykjavík verða opnir á gamlárskvöld.
33 veitingastaðir í Reykjavík verða opnir á gamlárskvöld. Vísir/Stefán
Á gamlárskvöld verða 33 veitingastaðir opnir í Reykjavík og á nýárskvöld verða þeir 51. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu.

Click here for an English version.

Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, segir aukið framboð á þjónustu fyrir erlenda ferðamenn í Reykjavík mikið fagnaðarefni. Hann segir veitingastaði og ferðaþjónustuaðila í höfuðborginni standa sig frábærlega í því að mæta þörfum þeirra ferðamanna sem kjósa að dvelja í Reykjavík yfir hátíðarnar.

 

Nánari upplýsingar um opnunartíma veitingastaða má finna í meðfylgjandi skjali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×