Sport

Aldrei fleiri tíst en nú

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Það má með sanni segja að allt hafi orðið vitlaust í viðureign Þýskalands og Brasilíu, en Þjóðverjar völtuðu yfir Brasilíumenn með sjö mörkum gegn einu.

Leikurinn er sögulegur á heimsvísu, en aldrei hefur verið meiri markamunur í undanúrslitaleik í heimsmeistarakeppni í fótbolta og er þetta stærsta tap Brasilíu í landsleik frá upphafi. Þá sló Miroslav Klose markamet brasilíska leikmannsins Ronaldo með sínu sextánda marki í heimsmeistarakeppninni.

Sjá mátti áhorfendur og stuðningsmenn Brasilíu berjast við tárin í áhorfendastúkunni yfir að sjá gengi liðs síns í leiknum.

Aldrei hafa fleiri tíst verið send út með merkingu heimsmeistarakeppninnar, #WorldCup og nú, og hefur enginn annar leikur í keppninni fengið jafn mikil viðbrögð á Twitter.

Hér að neðan má sjá nokkur dæmi.  





.

vísir/afp
.

vísir/afp
.

vísir/afp
.

vísir/afp
.

https://vine.co/v/MPXOVAOpOzQ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×