Fótbolti

Albert í úrvalsliði vikunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Albert skorar hér annað marka sinna í gær.
Albert skorar hér annað marka sinna í gær. Vísir/Getty
Albert Guðmundsson hefur verið öflugur með B-deildarliði Jong PSV í Hollandi en hann skoraði til að mynda bæði mörkin í 2-0 sigri á Breda í gærkvöldi.

Albert er í úrvalsliði deildarinnar þessa vikunna samkvæmt vl.nl og er þar settur út á hægri kantinn.

Jong PSV er sem stendur í fimmta sæti hollensku B-deildarinnar með 46 stig en Albert hefur í 22 leikjum skorað sex mörk. Meðal annars skoraði hann öll þrjú mörk liðsins í 3-0 sigri á Fortuna Sittard í haust.

Jong PSV hefur nú unnið fjóra leiki í röð en Albert lék fyrr á þessu ári sinn fyrsta A-landsleik er hann kom inn á sem varamaður gegn Kína í janúar.

Hann á þar að auki fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands en Albert verður tvítugur á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×