Lífið

Albert, Áslaug, Bjarni og allir hinir Sjálfstæðismenninir á snappinu í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sjálfstæðismenn verða á ferð og flugi í dag.
Sjálfstæðismenn verða á ferð og flugi í dag. Skjáskot
Sjálfstæðismaðurinn með stóra nafnið, Albert Guðmundsson, heldur utan um Snapchat-reikning fréttastofunnar, stod2frettir, í dag. Nú eru ekki nema 3 dagar til kosninga og því þurfa Albert og aðrir Sjálfstæðismenn að taka á honum stóra sínum.

Flokkurinn er þó á töluverðri siglingu og sem dæmi má nefna að flokkurinn mælist með rúmlega 25% fylgi í nýjustu könnun fréttastofunnar.

Til að fylgjast með ævintýrum þeirra þarf sem fyrr segir einungis að bæta við stod2frettir eða beina myndavél símans, þegar kveikt er á Snapchat, að gula merkinu hér að neðan.

Þá mætir fulltrúi flokksins í beina útsendingu á Vísi klukkan 13:30 í dag. Lesendur geta sent inn spurningar til frambjóðenda á Facebook-síðu Vísis. Hana má nálgast með því að smella hér.

Með því að kveikja á Snapchat og beina myndavélinni að gula reitnum geturðu bætt við Kvöldfréttum Stöðvar 2 með einföldum hætti.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×