Innlent

Ákvörðun í hópnauðgunarmáli liggur ekki enn fyrir

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Málið var kært í maí.
Málið var kært í maí. Vísir/Daníel
Enn hefur ekki verið tekin afstaða til þess hvort gefin verði út ákæra í máli fimm manna sem kærðir hafa verið fyrir hópnauðgun. Stúlka kærði mennina til lögreglu í maí og hefur málið verið á borði saksóknara síðan í júlíbyrjun. Fjórir mannanna eru í kringum átján ára aldur en einn er tvítugur.

Stúlka, sem var undir lögaldri, kærði fimm menn fyrir nauðgun sem á að hafa átt sér stað í samkvæmi í Breiðholti. Fimmmenningarnir voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald þegar málið var kært en kalla þurfti til Barnaverndarnefnd vegna þess að fjórir af mönnunum fimm voru undir lögaldri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×