Lífið

Ákvað síðast hver yrði aðalpersónan

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þorgrímur Kári beinir sviðsljósinu að aukapersónum í norrænni goðafræði og býr til sögu kringum þær.
Þorgrímur Kári beinir sviðsljósinu að aukapersónum í norrænni goðafræði og býr til sögu kringum þær. Vísir/Eyþór Árnason
Nýráður, Angurboða, Ganglöt, Böðvildur, Skinnnefja, Véseti, Ráðbarður, Reginleif og Glumra. Allt eru þetta nöfn sem koma fyrir í nýrri unglingasögu eftir Þorgrím Kára Snævarr. Skögla – helreið Nýráðs til Jötunheima – nefnist bókin og í lok hennar er upptalning á tugum fornra sagna, kvæða og handrita sem höfundurinn notaði til innblásturs.

Þorgrímur Kári er nýorðinn 23 ára. Hann lauk í sumar BA-prófi í teiknimyndasagnagerð frá ESA Saint-Luc í Belgíu, einum virtasta skóla sinnar tegundar í Evrópu. En í nýju bókinni beitir hann ekki teiknihæfileikunum heldur lætur bókstafina um að segja frá.

Hann kveðst hafa byrjað á sögunni fyrir fimm árum þegar hann var nýbúinn með annað árið sitt í MR. Var hann þá strax kominn með grind að henni í hugann?

„Ég vissi svona lauslega hvað mundi gerast, þó ég væri ekki búinn að ákveða alveg allt fyrirfram. Mig langaði að búa til goðsögulega bók byggða á norrænni goðafræði, eftir að hafa lesið Snorra Eddu og Völuspá í MR. En í stað þess að vera með Óðin og Þór í aðalhlutverki vildi ég beina athyglinni á nýja staði.

Síðan fór ég að hugsa um söguþráðinn og það síðasta sem ég ákvað var hver yrði aðalpersónan. Ég valdi dverg sem heitir Nýráður og er bara minnst á í dvergatalinu í Völuspá. Skögul er líka bara í nafnatali. Slíkt gildir um margar persónur í bókinni að þær eru bara nefndar á einum stað í hinum fornu ritum og það gaf mér svigrúm til að búa til mínar eigin persónur í kringum nöfnin.“

Án þess að afhjúpa alltof mikið um söguþráðinn þá eru aðalpersónurnar Nýráður og fósturdóttir hans Skögul á ferð til konungsríkis í Svíþjóð sem nefnist Næríki en missa sjónar hvort á öðru. Sagan fjallar mest um leit þeirra hvors að öðru á ný en á þeirri leið mæta þau ýmsum karakterum og lenda í hættum og ævintýrum.

Spurður hvort hann hafi strax verið ákveðinn í því sem barn að leggja skriftir og teikningar fyrir sig svarar Þorgrímur Kári: „Ég hef alltaf verið mikið í því að gera sögur og var mest í myndasögugerð þegar ég var yngri. En þetta er fyrsta bókin mín og það var dálítið átak að búa hana til.“

Þorgrímur hefur farið í hina ýmsu skóla að undanförnu og lesið upp, einkum fyrir krakka í 6. til 8. bekk. Hann segir þá áhugasama og hafa þurft að spyrja ótal spurninga.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. desember 2016






Fleiri fréttir

Sjá meira


×