Innlent

Akureyri á að vera kolefnishlutlaus bær

sveinn arnarsson skrifar
Guðmundur Haukur Sigurðarson, verkefnisstjóri Vistorku.
Guðmundur Haukur Sigurðarson, verkefnisstjóri Vistorku.
Gera á Akureyri að kolefnishlutlausu sveitarfélagi í náinni framtíð. Stofnað hefur verið fyrirtækið Vistorka ehf. í eigu Akureyrarkaupstaðar þar sem markmiðið verður kortlagt.

„Frumforsendan er að bera saman bæ með um 20.000 íbúa sem notar eingöngu jarðefnaeldsneyti sem orkugjafa, við bæ eins og Akureyri. Við undirbúning stofnunar Vistorku voru skoðuð áhrif þessara verkefna á kolefnisbókhald íbúa Akureyrarkaupstaðar,“ segir Guðmundur Haukur Sigurðarson, verkefnisstjóri hjá Vistorku.

Akureyrarbær og Vistorka munu ráðast í aðgerðir sem stuðla að því að gera bæinn kolefnishlutlausan með því að nýta og endurvinna úrgang í samfélaginu, stuðla að umhverfisvænni samgöngum og ýta undir skógrækt og matjurtaræktun heimila. Kolefnishlutleysi snýst um að jafna út það magn koldíoxíðs sem leyst er út í andrúmsloftið með því að beisla það á aðra vegu, svo sem með endurnýtingu á orku.

„Bæir í Evrópu af sömu stærð og Akureyri sem nota kol, olíu eða gas sem orkugjafa losa gróflega um 100 milljón kíló af koldíoxíði árlega,“ segir Guðmundur Haukur. „Þar sem öll upphitun húsnæðis á Akureyri er með jarðvarma og raforkunotkun einnig kolefnisfrí, lækkum við töluna okkar um 57 milljón kíló. Einnig flokka Akureyringar lífrænan úrgang og búa til úr því áburð. Því er aðeins um 30 milljón kíló eftir hjá okkur á Akureyri og er það fyrst og fremst vegna samgangna.“

Lækkun kolefnislosunar íbúa vegna samgangna þarf ekki að vera íþyngjandi fyrir íbúana að mati forsvarsmanna Vistorku. Ýmsar minni aðgerðir eru þegar hafnar, skógrækt mun nýtast, og hefur þegar gert, og ný vatnsaflsvirkjun á Glerárdal mun einnig nýtast til þess að knýja um 7.500 rafmagnsbíla í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×