Innlent

Akureyrarbær áfrýjar máli Snorra í Betel

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Snorri Óskarsson og lögmaður hans, Einar Gautur Steingrímsson.
Snorri Óskarsson og lögmaður hans, Einar Gautur Steingrímsson. vísir/auðunn níelsson
Akureyrarbær mun áfrýja dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli Snorra Óskarssonar til Hæstaréttar. Snorri, sem jafnan er kenndur við söfnuðinn Betel, vann í byrjun mánaðar mál sem bærinn hafði höfðað gegn honum.

Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarráðs í morgun með fjórum samhljóða atkvæðum. Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og fyrrverandi fræðslustjóri Akureyrar, lýsti sig vanhæfan til að fjalla um málið. Vék Gunnar því af fundinum. Hann sagði í samtali við Vísi að hann hefði tekið þessa ákvörðun, meðal annars í ljósi þess að hann hafi verið kallaður sem vitni í þessu dómsmáli.

Bæjarráð telur að afar brýnt sé að fá úrskurð Hæstaréttar um mörk tjáningarfrelsis kennara í grunnskólum og ábyrgð þeirra þegar kemur að umfjöllun um minnihlutahópa. „Eðli málsins samkvæmt geta kjörnir fulltrúar Akureyrarkaupstaðar og embættismenn bæjarins ekki tjáð sig frekar um einstaka þætti þessa máls fyrr en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir,“ segir í tilkynningu frá bæjarráði.

Upphaf málsins er á þá leið að Snorra var vikið úr störfum sem grunnskólakennari við Brekkuskóla árið 2012 vegna ummæla um samkynhneigð í persónulegu bloggi hans. Hann sagði í samtali við Vísi á dögunum að hann væri að íhuga að snúa aftur til kennslu í Brekkuskóla. Þá hefur hann einnig lýst því yfir að hann ætli að höfða skaðabótamál gegn Akureyrarbæ.


Tengdar fréttir

Segir þá deyja sem rjúfi lögmálin við Guð

Snorri Óskarsson í Betel segir samkynhneigð smitandi. Þetta kom fram í vitnaleiðslum í máli Akureyrarkaupstaðar gegn Snorra í Héraðsdómi norðurlands eystra í morgun.

Snorri í Betel vill á þing

"Já, ég gekk í Kristilega flokkinn,“ segir Snorri Óskarsson, oft kenndur við Betel. "Við viljum bjóða okkur fram, gagngert til þess að kristnu gildi hafi hljómgrunn, eða talsmann, á Alþingi.“

Snorra var ekki sagt upp vegna ummæla um samkynhneigð

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir í samtali við vikublaðið Akureyri að það sé af og frá að Snorra Óskarssyni, kenndan við trúarsöfnuðinn Betel, hafi verið sagt upp störfum sem kennari við Brekkuskóla í bænum vegna trúarskoðana sinna eða ummæla hans um samkynhneigð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×