Íslenski boltinn

Akureyrarbær: Stúkan á Þórsvelli stenst allar öryggiskröfur

Harjit er illa farinn eftir fallið og verður marga mánuði að ná fullri heilsu.
Harjit er illa farinn eftir fallið og verður marga mánuði að ná fullri heilsu. vísir/einar
Akureyrarbær vísar gagnrýni FH-ingsins Harjit Delay á öryggi Þórsvallar á bug og segir völlinn standast ítarlegar öryggiskröfur. Harjit féll fram yfir handrið stúkunnar fyrir rúmri viku síðan í aðdraganda viðureignar Þórs og FH í Pepsi-deild karla. Harjit lenti með andlitið á steypukanti. Er hann illa farinn eftir fallið.

„Hið hörmulega slys verður því á engan hátt rakið til þess að öryggi hafi verið ábótavant,“ segir í yfirlýsingu frá Akureyrar sem sjá má í heild sinni hér að neðan. Þar segir að handriðið sé 120 cm á hæð og standist allar kröfur.

Í viðtali á Stöð 2 í gær gagnrýndi Harjit öryggi áhorfenda á vellinum og sagðist vera að skoða réttarstöðu sína. Harjit sagðist efast um að stúkan uppfyllti öryggisstaðla og sagði stúkuna vera hættulega fimm ára börnum meðal annars.

Aðalsteinn Ingi Pálsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, furðaði sig á gagnrýni FH-ingsins í samtali við Vísi í morgun.

„Mér fannst þau bara alls ekki við hæfi. Ég hefði frekar búist við því að þessi maður hefði þakkað skjót og góð viðbrögð þeirra sem komu í veg fyrir að ekki fór verr. Það hefðu mér fundist eðlileg ummæli frá þessum einstaklingi sem hegðaði sér frekar ósæmilega fyrir þennan atburð. Hann mætti kenna sér sjálfum um og þakka öðrum fyrir að ekki fór verr.“

Aðspurður hvað hann meinar með Delay hafi hegðað sér ósæmilega svarar Aðalsteinn:

„Ég meina ekkert meira en það. Þetta var bara í alla staði ósæmileg hegðun. Ég ætla ekki að tjá mig neitt meira um það. Hann veit sjálfur hvað hann var að gera - ef hann man þá eftir því hvað hann var að gera.“

Akureyrarbær, sem á stúkuna, vísar þeirri gagnrýni algjörlega á bug og segir stúkuna standast allar öryggiskröfur. Tilkynningu Akureyrarbæjar má sjá hér að neðan:

„Akureyrarbær harmar slys er varð á Þórsvelli 14. september sl. og óskar stuðningsmanni FH góðs bata.Öll mannvirki sem reist eru á vegum Fasteigna Akureyrarbæjar, íþróttamannvirki sem og önnur, eru sem gefur að skilja hönnuð og byggð samkvæmt byggingareglugerðum og standast öll þau viðmið sem þar eru sett.

Stúkan á Þórsvellinum á Akureyri stenst allar öryggiskröfur m.a. með 120 sm háu handriði fremst. Á vellinum hafa farið fram fjórir leikir á vegum Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA en leikir á vegum sambandsins fara einvörðungu fram á völlum sem standast ítrustu öryggiskröfur.Hið hörmulega slys verður því á engan hátt rakið til þess að öryggi hafi verið ábótavant."


Tengdar fréttir

Heppinn að vera á lífi | Íhugar að kæra

Stuðningsmaður FH, Harjit Delay, segist vera heppinn að vera ekki í hjólastól eða hafa hreinlega hálsbrotnað er hann féll úr stúkunni á Þórsvelli fyrir leik Þórs og FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×