Innlent

Ákærður fyrir kynferðisbrot: Áfram í gæsluvarðhaldi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum og þroskaskertri konu.
Maðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum og þroskaskertri konu. Vísir/Pjetur
Aðalmeðferð í máli manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum lauk í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa brotið gegn þroskaskertri konu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri mun maðurinn sitja í gæsluvarðhaldi til 14. nóvember eða þar til dómur fellur. Brot mannsins geta varðað allt að 10 ára fangelsi.

Léku sér í boltaleik fyrir utan heimili mannsins

Í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti þann 28. ágúst sl., er manninum gefið að sök að hafa tælt tvo átta ára drengi inn í íbúð sína, en þeir voru í boltaleik fyrir utan heimili hans. Að sögn drengjanna kom maðurinn út og sakaði þá um að hafa sparkað bolta í bíl sinn. Hann mun hafa hótað drengjunum að hringja á lögregluna nema að þeir kæmu með honum inn og ræddu málið.

Þegar inn var komið segir annar drengjanna að maðurinn hafi girt niður um þá. Hinn drengurinn segir að maðurinn hafi skipað þeim að taka sjálfir buxurnar niður um sig. Þá mun hann hafa skipað drengjunum að rassskella hvor annan. Hann mun einnig hafa skipað drengjunum að slá hvorn annan fastar þar sem honum fannst höggin vera of létt. Maðurinn mun síðan hafa rassskellt þá sjálfur og slegið þá ítrekað með flötum lófa að því er fram kemur í vitnisburði drengjanna.

Voru með áverka

Læknisskoðun leiddi í ljós að báðir drengirnir voru með áverka eftir rassskelli og kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að annar drengurinn hafi „einnig haft aðra áverka sem samrýmist sögu hans. Sá drengur staðhæfi einnig að drengirnir hafi ítrekað spurt sakborning hvort þeir mættu fara heim en hann sagt þeim að þegja.“

Dómur verður kveðinn upp innan fjögurra vikna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×