Innlent

Ákærðir fyrir tugi lögbrota

Brenndur bíll Einn piltanna kveikti í þessari BMW-bifreið fyrir skemmstu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Brenndur bíll Einn piltanna kveikti í þessari BMW-bifreið fyrir skemmstu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN

Mál þriggja pilta sem ákærðir hafa verið fyrir innflutning á rúmlega 400 grömmum af kókaíni frá Frankfurt til Íslands í janúar á þessu ári var tekið til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Piltarnir þrír sóttu kókaínið til óþekkts tengiliðs í Amsterdam eftir að 25 ára gamall maður hér á landi, Mikael Már Pálsson, hafði fengið þá til þess að flytja efnið til landsins. Mikael Már hefur þegar verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir fíkniefnainnflutning sem ekki tengist þessu tiltekna máli.

Piltarnir gengu frá efninu á Hotel Nova í Amsterdam 22. janúar og héldu síðan til Frankfurt í Þýskalandi, þaðan sem þeir fluttu efnið hingað til lands. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli fann efnin á piltunum.

Einn piltanna, sem er nítján ára gamall, er að auki ákærður fyrir rúmlega tuttugu önnur lögbrot. Þar á meðal eru fimmtán umferðarlagabrot en flest þeirra eru vegna hraðaksturs, ölvunaraksturs eða aksturs bifreiða án ökuréttinda.

Þá er hann einnig ákærður fyrir innbrot og þjófnaði. Lögreglan þurfti meðal annars að hafa átta sinnum afskipti af drengnum vegna umferðarlagabrota, fíkniefnabrota og innbrots, dagana 20. til 27. júní á þessu ári. Átta daga í röð var hann stöðvaður réttindalaus á bifreið, í nokkrum tilvikum undir áhrifum vímuefna. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa stolið tveimur hjólbörðum á álfelgum af bifreið.

Þar að auki kveikti hann í tveimur BMW-bifreiðum á bifreiðastæði við bílasöluna Bill.is aðfaranótt 26. júlí. Tjónið er metið á nokkrar milljónir króna en pilturinn hellti eldfimum vökva yfir bílana og kveikti síðan í þeim. Hann brenndist nokkuð í andliti er hann kveikti í bifreiðunum. Hann leitaði sjálfur aðstoðar á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss seinna um nóttina. Þar játaði hann fyrir lögreglu að hafa kveikt í bifreiðunum.

Tveir piltanna hafa þegar farið í vímuefnameðferð en þeir eru átján og nítján ára gamlir.

Piltarnir hafa átt við fíkniefnavanda að stríða um nokkurra ára skeið og hafa á þeim tíma margsinnis komið við sögu lögreglu, oftast nær fyrir að vera með fíkniefni á sér, ýmist til einkaneyslu eða sölu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×