Innlent

Ákærð fyrir manndrápstilraun í Ungverjalandi: Veit ekki hvort hún hafi verið rekin eða ekki

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tilkynnti í gær að konan hefði verið sett í leyfi en lögmaður hennar segir ekki ljóst hvað það þýði.
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tilkynnti í gær að konan hefði verið sett í leyfi en lögmaður hennar segir ekki ljóst hvað það þýði. Vísir
Íslensk kona sem ákærð hefur verið fyrir tilraun til manndráps í Ungverjalandi veit ekki hvort henni hafi verið sagt upp störfum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eða ekki.

Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tilkynnti í gær að konan, sem heitir Emma Caroline Fernandez, hefði verið sett í leyfi. segir að konan hafi við upphaf ráðningar kynnt stjórnendum á stofnuninni að kærumál gæti verið í undirbúningi gagnvart henni en stjórnendum hafi ekki verið kunnugt um alvarleika ákærunnar, sem verður tekin fyrir nú í haust.

Tjáir sig ekki um málið

Sjálf vill Emma ekki tjá sig um málið í samtali við fréttastofu nú fyrir hádegi en lögmaður hennar, Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, segir málið óljóst. Hún vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins en sagði að hún og umbjóðandi sinn væru að fara á fund með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í dag vegna málsins, í von um að fá stöðuna skýrða.

Þá segir Ingibjörg Ólöf að konan viti ekki hvort hún muni fá laun áfram frá stofnuninni eða ekki. Hreinlega liggi ekki fyrir hvort henni hafi verið sagt upp eða ekki.

Bíður dóms og segist saklaus

Emma, sem bíður dóms í Ungverjalandi fyrir tilraun til manndráps sumarið 2012, segist vera saklaus í málinu og að meint fórnarlamb hennar hafi sviðsett það, en hún er sökuð um að hafa byrlað vinkonu sinni svefnlyf og barið hana tvívegis í höfuðið með hamri.

Hún var búsett í Debrecen í Ungverjalandi, þar sem hún stundaði nám í læknisfræði, þegar atvikið átti sér stað. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er konan sem sakar hana um verknaðinn nígerísk skólasystir hennar.


Tengdar fréttir

Læknir ekki framseldur þótt hún yrði dæmd sek

Íslenskur læknir, sem grunaður er um mortilraun í Ungverjalandi, segir að um sviðsettan glæp sé að ræða. Konan starfar hér á landi. Verjandi segir rannsókninni vera ábótavant. Íslenskir ríkisborgarar eru ekki framseldir til annarra landa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×