Viðskipti erlent

Air Berlin segir upp 1.200 manns

Atli ísleifsson skrifar
Flugfélagið hyggst reka 75 vélar frá miðju næsta ári.
Flugfélagið hyggst reka 75 vélar frá miðju næsta ári. Vísir/Getty
Þýska flugvélagið Air Berlin greindi frá því í gær að 1.200 starfsmönnum fyrirtækisins verði sagt upp.

Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að flugfélagið muni einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni og vera öflugt flugfélag sem þjónu farþegum sem fljúga fyrst og fremst til og frá Berlín og Düsseldorf.

Flugfélagið er næststærsta flugfélag Þýskalands og hyggst reka 75 vélar frá miðju næsta ári. Þetta er einungis um helmingur af flugvélaflotanum í dag, en Air Berlin var með 144 vélar í notkun í júní síðastliðinn.

Aukin samkeppni er sögð helsta ástæða niðurskurðarins, auk mikilla tafa við opnun Brandenborgar-flugvellar í Berlín.

Í frétt SVT segir að allt frá því að félagið var skráð á markað 2006 hafi Air Berlin einungis einu sinni skilað hagnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×