Innlent

Áhyggjufullir foreldrar neita að láta börn dvelja í sársveltum skóla

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Dagur B. Eggertsson tók við ályktun leikskólastjórnenda í gær en mikil samstaða er meðal leikskólastarfsfólks og foreldra.
Dagur B. Eggertsson tók við ályktun leikskólastjórnenda í gær en mikil samstaða er meðal leikskólastarfsfólks og foreldra. fréttablaðið/anton
Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík hafa komið af stað undirskriftasöfnun þar sem skorað er á borgaryfirvöld að snúa vörn í sókn í leikskóla- og skólamálum. Fimm hundruð undirskriftir söfnuðust á fyrstu þremur tímunum.

„Við neitum að láta börnin í borginni dvelja í sársveltum rekstri og krefjumst þess að forgangsraðað verði á nýjan hátt með aðbúnað þeirra og gæði skólastarfsins að leiðarljósi,“ segir í formála undirskriftasöfnunarinnar.

Brynja Dögg Heiðudóttir, foreldri barns í leikskóla borgarinnar, stofnaði hópinn Leikskólamál í Reykjavík á Facebook fyrir ári og hóf undirskriftasöfnun í gær. Hún segir marga foreldra lýsa yfir áhyggjum af stöðunni og segjast frekar vilja greiða hærri leikskólagjöld en að svelta leikskólana.

„Síðustu þrjá daga hafa átta hundruð manns bæst í hópinn,“ segir hún. „Á síðustu árum hefur niðurskurðurinn sett sitt mark á leikskóla dóttur minnar, það er alltaf sama dótið og allt fullt af klósettrúllum og mjólkurfernum sem er eini efniviðurinn fyrir föndur og annað.“

Formaður foreldrafélags Laugasólar tekur undir orð Brynju en félagið hefur stutt leikskólann með kaupum á leikföngum og öðru. „Við kaupum bækur, útidót, fótboltamörk, hjól og bolta svo eitthvað sé nefnt. Það er eitthvað sem leikskólinn ætti að geta keypt en það er ekki fjármagn. Svo reynum við að gleðja þreytt starfsfólk með ostabökkum og öðru álíka,“ segir Helena Gunnarsdóttir.

Í samtali við aðra formenn foreldrafélaga kom í ljós að mörg félög styrkja leikskólana með gjöfum og endurnýjun á húsgögnum eða útidóti í stað þess að nota fjármagn í leiksýningar eða annað uppbrot á daglegu starfi.

Í gær afhentu leikskólastjórar borgarinnar borgarstjóra ályktun þar sem niðurskurði í leikskólum er mótmælt. Skora þeir á borgaryfirvöld að endurskoða fjárveitingar til leikskóla. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×