Fótbolti

Áhrifamikla lesbían, sú heimilislausa og bankastarfsmaðurinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Claire Rafferty, Fara Williams og Casey Stone.
Claire Rafferty, Fara Williams og Casey Stone. vísir/getty
Englendingar eru smám saman að komast að því að þeir eiga líka kvennalandslið í fótbolta og það er að standa sig mun betur en karlarnir hafa gert undanfarin ár.

Ensku stelpurnar eru að heilla alla upp úr skónum með spilamennsku sinni á HM 2015 í Kanada, en þar er liðið nokkuð óvænt komið í undanúrslit eftir frækna sigra á Noregi og heimakonum frá Kanada í útsláttarkeppninni.

Enska liðið hefur meira að segja hrifið Jamie Redknapp, fyrrverandi landsliðsmann Englands, sem segist ekkert hafa fylgst með enskir kvennaknattspyrnu fyrr en nú.

Vefsíða breska blaðsins Daily Mail ákvað að kynna stelpurnar fyrir ensku þjóðinni almennilega og er úttektin virkilega skemmtileg lesning.

Casey Stone.vísir/getty
Kom út úr skápnum og eignaðist tvíbura

Varnarmaðurinn Casey Stone varð á síðasta ári önnur í enska liðinu til að verða móðir, en leið hennar að foreldrahlutverkinu var ekki hefðbundin.

Stone er í sambandi með Megan Harris, fyrrverandi samherja sínum úr Lincoln Ladies, en Harris fæddi parinu tvíbura á síðasta ári.

Aðeins níu mánuðum áður hafði hin 33 ára gamla Casey komið út úr skápnum, en hún er númer níu á Regnbogalistanum; Árlegum lista yfir áhrifamesta fólk Bretlands hjá samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og transfólki.

Fara Williams.vísir/getty
Bjó á götunni í sex ár

Miðjumaðurinn Fara Williams hefur átt nokkuð erfitt líf, en hún er leikjahæsta kona breska liðsins frá upphafi. Hún var heimilislaus í sex ár á ævi sinni.

Williams var alin upp af einstæðri móður ásamt þremur systkinum í bæjarblokk í Suður-London. Stundum þurfti hún að búa hjá afa sínum og ömmu.

Eftir rifrildi við móður sína þegar hún var 17 ára gömul endaði hún á götunni þar sem hún bjó í sex ár.

Hún hélt þó áfram að æfa fótbolta og spilaði sinn fyrsta landsleik nokkrum mánuðum eftir að lenda á götunni. Williams spilaði fyrstu árin sín í efstu deild án þess að segja nokkrum frá því að hún ætti hvergi heima.

Það var ekki fyrr en að hún samdi við Everton, 23 ára gömul, að hún gat leigt sér íbúð. Hún spilar í dag með Katrínu Ómarsdóttur hjá Liverpool.

Claire Rafferty.vísir/getty
Vinnur hjá Deutsche Bank

Claire Rafferty
, vinstri bakvörður enska liðsins, er hálfatvinnumaður eins og svo margir aðrir kvennaknattspyrnumenn á Englandi.

Ásamt því að spila fótbolta í efstu deild er Rafferty í hálfu starfi sem sérfræðingur Deutsche Bank í Lundúnum. Hún þurfti að biðja um frí frá vinnu til að komast á HM.

„Þið ættuð að sjá bækurnar í herberginu mínu á hótelinu. Liðsfélagar mínir lesa mest ævisögur fótboltamanna og enginn vill skipta á þeim og bókunum mínum um vogunnarsjóði,“ sagði hún í viðtali á dögunum.

Alla úttekina má lesa hér en enska liðið spilar við heimsmeistara Japan í undanúrslitum á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×