Innlent

Áhrif verkfalla á allt atvinnulífið stigmagnast

Heimir Már Pétursson skrifar
Rúmlega tíu þúsund manns í ræstingum hjá fyrirtækjum, stofnunum, gistustöðum og svo framvegis sem og í framleiðslu og þjónustu ýmis konar á landsbyggðinni lögðu niður störf í tvo sólarhringa frá og með miðnætti. Verkfallið kemur þungt niður a ferðaþjónustu og veitingastarfsemi.

Áhrifin af verkfalli Starfsgreinasambandsins eru mjög víðtæk. Fiskvinnsla og önnur matvælaframleiðsla utan höfuðborgarsvæðisins liggur meira og minna niðuri, áhrifin eru mikil á alla ferðaþjónustu hvaða nafni sem hún nefnist sem og fjölbreytta aðra starfsemi svo sem eins og hjá stofnunum, leikskólum og fleiri aðilum.

Þannig er ekki víst að leikskólar opni á föstudag á landsbyggðinni þar sem ræstingar hafa þá legið niðri í tvo sólarhringa. Sumir veitingastaðir hafa hreinlega þurft að loka eins og þrír staðir Dóminós á Akureyri, Selfossi og Akranesi.

Það hefur KFC á Selfossi einnig þurft að gera vegna verkfalls starfsfólks. Þar á bæ hafa menn menn ekki lengur aðgang að ferskum kjúklingi. Helgi Vilhjálmsson sem rekur átta KFC staði á landinu segist eiga eitthvað af frosnum kjúklingi á lager en að lokum munu bæði verkföll dýralækna hjá BHM og starfsmanna hafa áhrif á reksturinn.

Sérðu fram á að þurfa að loka?

„Ég vona ekki. Við hljótum að semja áður en við förum í þann pakka. Sumarið að byrja og fólk að fara í sumarfrí. Hvað erum við að gera eiginlega,“ segir Helgi bjartsýnn að vanda.

Og Helgi styður launakröfur Starfsgreinasambandsins,  Flóabandalagsins og VR sem einnig hafa boðað til verkfalla og munu ef þau koma til framkvæmda verða til þess að hann verður að loka öllum sínum veitingastöðum.

„Ég segi nú fyrir mitt leyti með þessa hækkun að 300 þúsundunum á næstu þremur árum er eðlileg. Við eigum náttúrlega að samþykkja það. En ég held að hinir sem eru með meira; þeir eru með eigið verkalýðsfélag. Þeir eru búnir að redda sér en ekki hinir þarna fyrir neðan. Við eigum bara að reyna að ganga að þessu. Ég skal ganga að þessu. KFC skal ganga að þessu ef þeir láta mig fá kjöt,“ segir Helgi Vilhjálmsson.


Tengdar fréttir

Verður í lagi næstu 7 til 10 daga

Verkfallsaðgerðir koma misjafnlega niður á fólki, en bitna bæði á þeim sem eru í verkfalli, viðsemjendum þeirra og svo þeim sem ekki geta annað gert en fylgst með framvindunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×