Bíó og sjónvarp

Áhorfendur í sæti X-Wing flugmanns

Samúel Karl Ólason skrifar
Star Wars birti í gær frábært 360 gráðu kynningarmyndband fyrir Rogue One. Myndbandið, sem heitir Rogue One: Recon og framleitt er af fyrirtækinu ILMxLAB, setur áhorfendur í sæti X-Wing flugmanns sem rambar fyrir slysni á Helstirnið og gríðarstóran flota.

Rogue One verður frumsýnd fyrir jólin og fjallar um hóp uppreisnarmanna sem fá það verkefni að stela teikningunum að Helstirninu.

Í Rogue One: Recon eru flugmennirnir Scout 2 og Scout 3 (Emily Roya O'Brien og Sam Witwer) að kanna sólkerfi sem á að vera óbyggt og tómt. Svo reynist þó ekki vera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×