Bíó og sjónvarp

Áhorfendur á Star Wars-sýningu trylltust þegar sýningarvélin bilaði

Birgir Olgeirsson skrifar
John Boyega og Daisy Ridley í hlutverkum sínum sem Finn og Rey í The Force Awakens.
John Boyega og Daisy Ridley í hlutverkum sínum sem Finn og Rey í The Force Awakens. Vísir/Youtube
Sýningarvél í Arclight-kvikmyndahúsinu í Hollywood í Bandaríkjunum bilaði á miðri sýningu á sjöundu Stjörnustríðsmyndinni, The Force Awakens, síðastliðið fimmtudagskvöld. Olli það mikilli reiði á meðal áhorfenda í sýningarsalnum, en til að bæta gráu ofan á svart var hlaupið yfir stóran hluta myndarinnar þegar truflanir gerðu vart við sig aftur.

Það veit ekki á gott fyrir áhorfendur sem vilja láta koma sér á óvart, og hlupu margir út úr salnum og skipuðu starfsmönnum myndarinnar að stöðva sýninguna.

Þó nokkrir úr salnum birtu myndbönd sem þeir tóku innan úr salnum þegar bilunin átti sér stað en þar má sjá nokkra missa stjórn á skapi sínu, sumir frekar kaldhæðnislega en aðrir í fullri alvöru.

Ekki er ljóst hvað olli biluninni en kvikmyndahúsið hefur lofað þeim sem áttu miða á þessa sýningu endurgreiðslu.

Á Íslandi átti svipað atvik sér stað í Egilshöll aðfaranótt síðastliðins fimmtudags. Um var að ræða frumsýningu á myndinni og olli það töluverðu uppnámi á meðal áhorfenda. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×