Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ég sé í kortinu þínu að fólkið í kringum þig getur verið dálítið pirrað eða leiðinlegt og komið með misskemmtileg komment og svo framvegis. Í því er fólgin smá öfund og hafðu það hugfast að enginn er öfundaður nema hann hafi eitthvað til brunns að bera.

Tímabilið sem þú ert á núna sýnir þér að þú þarft að stokka aðeins upp í vinahópnum þínum. Ef þú skoðar sjö nánustu vini þína þá sérð þú betur þverskurðinn af því hvert þú skalt stefna þegar kemur að vináttunni.

Það er mikilvægt núna að efla fjölskyldu og vini sem skipta máli og mundu það, elsku Vogin mín, að það kostar vinnu að vera góður vinur. Nú er tíminn til þess að bjóða þeim sem þú hefur ekki sinnt heim, eða kíkja bara í heimsókn og endurnýja gömul kynni.

Ef þú ert á lausu og hefur áhuga á því þá dettur þú í lukkupottinn í sambandi við ástina. Mundu að ástin á að vera auðveld og láta manni líða vel. Maður á ekki að hristast og skjálfa á beinunum af stressi og kvíða. Þegar ástin er hrein og bein þarf engu að kvíða.

Tilfinningar þínar geta stundum tengst þráhyggju og ef svo er þá þarftu að leita ráða og fá smá aðstoð. Þessi þráhyggja og þær tilfinningar sem fylgja geta bæði tengst frama þínum og ástinni.

Þú átt eftir að fá meiri leiðsögn í lífi þínu á næstu tveimur til þremur mánuðum heldur en hefur gerst áður. Þú skilur hlutina einhvern veginn betur þegar þú veist að þú ert á réttri leið. Húmorinn verður með þér í för og þú munt geta hlegið að mistökum þínum. Þá verður allt svo miklu léttara því húmor er sólskin hugans og það mun leiða þig áfram.

Þú munt vekja mikla athygli þegar haustar, vertu viðbúin því, njóttu þess og taktu fegins hendi!

Lífið er gott, það er alveg á hreinu!

Þín Sigga Kling

Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×