Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Tvíburi: Ástin er stundum eins og hernaður

Elsku hjartans ómótstæðilegi Tvíburinn minn! Þetta er aldeilis búið að vera litríkt sumar fyrir þig. Það er sko ekki hægt að kvarta yfir því að ekkert hafi gerst!

Merkúr er plánetan þín og hún stjórnar samskiptum. Þú ert að fara að kynnast, eða ert búinn að kynnast, svo mörgu fólki sem mun gera líf þitt svo miklu skemmtilegra. Þú þarft að taka eftir fólkinu sem er allt í kringum þig og þótt þér finnist þú kannski ekki hafa áhuga á því þá skalt þú gefa öllum tækifæri. Þetta er bæði tengt vinnunni og ástinni. Því það getur alls konar leynst í ólíklegustu persónum, jafnvel einhvers konar óvænt gjöf.

Þú átt það til að vera ekki alveg nógu mannglöggur og velja þér vini sem á einhvern hátt valda þér vonbrigðum. En mundu það, elskan mín, að það er ástæða fyrir öllu svo vertu ekkert að vorkenna þér neitt.

Þú þarft að vera ákveðinn í því að koma þér beint að efninu og tala við þá sem ráða öllu en ekki treysta á aðra og biðja þá um að redda þér. Þú þarft einhvern veginn að gera allt sjálfur núna.

Um leið og þú skilur þetta þá margfaldast þú að krafti og munt treysta miklu meira á þig og innsæi þitt en þú hefur vanalega gert.

Það er að rísa einhver svo sterkur kraftur í þér, næstum eins og þegar það verður eldgos. Þessi kraftur mun nýtast í ákvarðanir sem tengjast vinnu og heimili og þú verður ánægður með að gera hlutina skýrt. Ef þér líður eitthvað illa með leiðbeiningar frá fólki í kringum þig eða treystir þeim ekki alveg þá þýðir það að það sé verið að segja þér vitleysu.

Þú virðist vera með réttu svörin og þegar þú stólar ekki á neinn nema bara þig þá er þetta skýrt. Ef þú hefur einhvern áhuga á ástarmálunum þá er Venus alveg í kortunum en mundu það, elsku Tvíburinn minn, að ástin er stundum eins og hernaður. Þú þarft að ákveða hvaða ríki þú vilt vinna og komast yfir og hvernig maka þú vilt fá. Þú átt ekki að sætta þig við neitt sem er ekki nógu fullkomið fyrir þig og ekki gefa neinn afslátt af neinu. Ef þú gerir það þá ertu á vitlausri leið.

Það er eins og þér finnist að þú sért að breytast og verða sterkari og það er nákvæmlega hárrétt, svo til hamingju með það!

Lífið er yndislegt,

þín Sigga Kling

Frægir Tvíburar: Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður, Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×