Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Sporðdreki: Viljinn er verkfærið

Elsku hjartans magnaði Sporðdrekinn minn! Það er svo sannarlega hægt að segja að gleði sé súrefni sálarinnar og að þú sért súrefni gleðinnar!

Þú munt finna ný ráð til að leysa vandamálin þín og munt breyta um stefnu. Það er alveg öruggt.

Það er hægt að finna ráð við öllu nema dauðanum, mundu það elskan mín. Þetta hljómar kannski eins og dálítið skrýtin setning, en íhugaðu hana vel því hún er sett sérstaklega saman fyrir þig.

Viljinn er verkfærið sem þú þarft og ef þú hefur hann þá sérð þú rétta veginn.

Orkan þín er búin að vera að fara eitthvað svolítið þvers og kruss og þú hefur verið að hugsa um að þú þurfir að gera einhverjar breytingar en innst inni trúir þú ekki alveg að þú getir gert það.

Þú skalt ekki gefast upp þó þú hafir dottið á rassinn með ákvarðanir gærdagsins. Mark Twain sagði einu sinni: Að hætta að reykja er minnsta mál í heimi. Ég veit það vegna þess að ég hef hætt þúsund sinnum.

Edison gerði yfir þúsund tilraunir til að búa til ljósaperuna og þegar hann var spurður út í það seinna þá sagði hann að honum hefði ekki mistekist, hann hefði einfaldlega fundið yfir þúsund leiðir til að gera ekki ljósaperu þannig að engin tilraunanna var mistök. Allar færðu þær hann líka nær takmarkinu. Þannig þarf maður að hugsa, hjartans Sporðdreki!

Þú ert fæddur hingað á jörðina til þess að safna visku, gleði og vera hamingjusamur en aðallega til þess að hafa gaman. Ef þér finnst eitthvað leiðinlegt núna breyttu því þá! Það ert þú sjálfur sem stjórnar því hversu gaman er! Það er enginn sem getur eða mun gera þig hamingjusaman nema þú ákveðir sjálfur að þú ætlir að leyfa þér að verða hamingjusamur.

Þú hefur geislandi yfirburði á svo mörgum sviðum en þú þarft að ákveða hvaða svið hentar þér best og á hvaða sviði þú skemmtir þér best og mest.

Þegar kemur að ástinni þá skalt þú ekki sýna afbrýðisemi því hún drepur ástina og þú vilt það alls ekki.

Lífið er yndislegt,

þín Sigga Kling

Frægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari.

 


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×