Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Meyja: Elskaðu af einlægni

Sigga Kling skrifar
Elsku hvetjandi Meyja. Þú ert að fara inn í sérstakt tímabil á næstu þremur mánuðum þar sem þú þarft að eyða miklum tíma í að hvetja sjálfa þig áfram. Þú þarft að sjá sjálfa þig sem þessa háu ljósveru sem þú ert.

Þér hefur kannski fundist mikið af mistökum vera að gerast í kringum þig en þetta er bara eins og í Disney-myndinni Kung Fu Panda þegar gamla skjaldbakan kaus pönduna til að vera drekastríðsmann. Þá sagði lærimeistarinn að þetta hlytu að vera mistök því feita pandan gæti ekki verið stríðsmaður. En gamla skjaldbakan svaraði með ljúfri röddu: ÞAÐ ERU ENGIN MISTÖK TIL.

Þú færð bestu hugmyndirnar þínar þegar þú ert í góðu skapi og þær fá að flæða. Taktu vel eftir því.

Það er svo mikilvægt að þér finnist ekki hlutirnir vera á móti þér því þá kallarðu bara til þín enn verri tímabil. Það gengur allt betur nú þegar en þú þorðir að vona og þetta muntu sjá þegar líður á ágúst. Miðað við kortin þín þá sé ég að þú verður nokk ánægð með uppskeru þína.

Þetta er líka tímabil hreinsunar þar sem þú munt finna þér leiðir til að fá betri orku og skýrari hugsun.

Ágústmánuður kemur með mikla vinnu til þín þó svo að þú sért að fara í sumarfrí. Sumir hafa það á tilfinningunni að það rigni upp í nefið á ykkur Meyjunum en það er svo sannarlega ekki rétt.

Þegar á reynir getur Meyjan lagað sig að öllum aðstæðum og þótt Meyja byggi í helli þá myndi hún alltaf finna ráð til að hafa allt í fínasta lagi í kringum sig.

Besta leiðin til að fá það sem þú átt skilið er að elska af einlægni og dæma engan. Þú tekur frekar hvatvísa ákvörðun í tengslum við starf eða samning einhvers konar.

Mottó: Slappaðu af!

Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Daðraðu við lífið

Dásamlegi Fiskur. Það sem einkennir þig mest þessa dagana er að þú ferð bara þínar eigin leiðir. Það kemur þó fyrir að þér finnist þú vera svo hjálparlaus að þú gætir alveg misst máttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×