Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Krabbi: Meðalmennskan hæfir þér ekki!

Elsku hjartans Krabbinn minn! Þú ert búinn að vera svo rosalega duglegur og vinna af fullum krafti í því að komast áfram í lífinu.

Það er gott að vinna af krafti en þú þarft líka að muna að hvíla þig. Ekki vera með samviskubit þó að sumir dagarnir virðist daufari og líða hægar heldur en aðrir dagar.

Það sem gefur þér einna mesta sérstöðu er það að þú hefur svo gaman af fólki og gefur alltaf svo mikið af þér.

Svo þegar dagar sem virðast eitthvað daufari koma upp þá þarft þú bara að taka fast í hnakkadrambið á þér og henda þér út í félagslífið. Það er einn og einn Krabbi sem getur fundið fyrir örlítilli félagsfælni og það er eitt það versta sem getur komið fyrir Krabba og ef þú finnur fyrir slíkum kvíða þá þarft þú að vinna í því, skora á sjálfan þig og henda þér út í hringiðuna!

Þú ert á góðum tíma og ekki láta einhver tilbúin vandamál sem skipta engu máli vera að flækjast fyrir þér!

Og þó að einhver vitleysa hafi verið í kortunum hjá þér þá skalt þú bara gleyma því! Þú manst oft best og mest eftir þeim lífsreynslu sem hefur verið erfið, en núna skaltu taka þessar minningar, setja þær í poka, loka honum og henda honum í ruslið.

Ég lifi til að gleyma og ef ég er að hanga með hugann í gærdeginum þá er ég ekki að lifa í núinu. Og það er sko lang skemmtilegast að lifa í núinu!

Það er möguleiki á að þú getir ekki gengið frá öllu sem þú ert búinn að lofa að gera, þú skalt þá bara tala við viðkomandi og útskýra hvernig staðan er. Við það léttir af þér heilu fjalli sem þú ert búinn að vera að burðast með á bakinu.

Þú ert svo hrifnæmur en gerir þér samt fulla grein fyrir því sem er rétt og rangt. Að vera hrifnæmur eru kostur. Því þegar þú elskar, sama hvað það er sem þú elskar, þá gerir þú það af heilum hug og mikilli ástríðu. Það er svo sannarlega hægt að segja að þú, elsku Krabbinn minn, sért ástríðufyllsta merkið!

Þú ert trúgjarn og sem betur fer, segi ég, því það að trúa að þú getir færir þig nær takmarki þínu. Svo þú skalt ekki hætta því!

Sumarið er búið að vera fullt af merkilegum augnablikum og þegar haustið kemur þá getur þú séð að þetta er eitt besta sumar sem þú hefur átt í langan tíma. Ef þú hangir á meðalmennskunni þá ert þú ekki eins kátur og þú ættir að vera. Meðalmennskan hæfir þér ekki og þú skalt nýta þér það hugrekki sem birtist í þessum mánuði til þess að koma þér á annan stað, þá munu aðstæðurnar breytast.

Hamingjan er vinur hins hugrakka og ég get svo sannarlega sagt þér það að hugrekkið verður vinur þinn á næstunni.

Lífið er dásamlegt, mundu það!

Knús,

þín Sigga Kling

Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×