Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Hrútur: Þér dugar ekkert hálfkák

Elsku hjartans kraftmikli Hrúturinn minn. Það er svo sannarlega hægt að segja um þig að þú sért manneskja sem neitar að gefast upp.

Þú vilt klára það sem er fyrir höndum og ekkert múður með það!

Stundum verður það til þess að þú gerir alltof mikið og þess vegna vil ég segja við þig að sumarið er tíminn til þess að slaka á.

Það verður mikið af ferðalögum núna og óvæntum atburðum sem skreyta þennan tíma. Þú átt það til að geta verið of stjórnsamur en sumarið færir þér tæki og tól til þess að slaka meira á og stjórna minna. Þú þarft að leyfa þér að vera svolítið latur. Leti getur nefnilega verið svolítið sexí, sérstaklega þegar þú átt í hlut!

Haustið kemur með krafti og verður svo sannarlega þinn tími. Það gengur allt svo miklu betur í vinnunni og félagslífinu og þú gerir einhverja samninga eða gengur frá einhverju sem fær þig til þess að fagna. Þú átt eftir að vera svo þrjóskur á þínu og finna víkinginn í þér til þess að koma því sem þú vilt áfram.

Það mun ekki öllum finnast þú vera ofsalega skemmtilegur á þessu tímabili en þú þarft bara að læra að láta þér vera alveg skítsama um hvað öðrum finnst því þú getur ekki látið öllum líka vel við þig.

Þú finnur einhverja nýja leið til þess að afla þér meiri tekna og finnur líka leið til þess að eyða þeim öllum. Það er bara dásamlegt og þú þarft að muna að sjá ekki eftir neinu þótt þú hafir leyft þér eitthvað og trítað þig smá.

Þú átt eftir að vera í kringum fólk sem mun hafa mikil áhrif á framtíð þína og þú finnur að þú þorir meira. Þú munt nota þetta til þess að aðstoða fólkið í kringum þig til þess að ná markmiðum sínum.

Alltaf þegar þú hjálpar öðrum hættir þú að hafa áhyggjur af þínum eigin vandamálum og ef þú skoðar hlutina betur þá er ekkert að gerast sem þú getur ekki sigrast á.

Það er ótrúlega mikilvægt fyrir þig að vera ástfanginn, hjartans Hrútur. Þú þarft annaðhvort að elska af öllu hjarta eða sleppa því algjörlega því hálfkák dugar þér minna en ekki neitt.

Lífið er yndislegt,

þín Sigga Kling

Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×