Lífið

Ágústa Eva fær að kenna á Kylfunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Kolfinna Nikulásdóttir, sem er ef til vill betur þekkt sem Kylfan, fyrrverandi Reykjavíkurdóttir, segir karla hafa skrifað texta um rassa, brjóst, tíkur og munnmök svo elstu menn muna. Þeir hafi lengur haft leyfi til að gera það og því sé það „normið“. Hún setur einnig út á ummæli Ágústu Evu Erlendsdóttur um Silvíu Nótt í hjólastól.

Kolfinna syngur viðlag lagsins Ógeðsleg sem Reykjavíkurdætur spiluðu í Vikunni hjá Gísla Marteini í gær.

Sjá einnig: Ágreiningur um útgöngu Ágústu Evu

„Ég er ekkert að segja að svarið sé að allir niðurlægi alla, mér er nett sama um það niðurlægingar- finnst það bara fyndið. Ég er heldur ekki að segja að atriði rvkdætra hjá Gísla Marteini hafi verið fullkomið, þó það sé klárlega mjög fyndið að rústa leikmyndinni í þessum óþægilega propper þætti, grænda Gísla Martein, svívirða Eivör (það er náttúrulega langfyndnast) og gefa fokkjúputta í beinni (sem ég set reyndar STÓRT spurningamerki við),“ skrifar Kolfinna á Facebooksíðu sinni.

Sjá einnig: Ágústa Eva: „Aldrei skammast mín jafn mikið og nú“

Kolfinna segir að það þurfi að rétta þá skekkju sem finna megi í samfélaginu og það sé erfitt. Til þess þurfi handafl og beinir hún orðum sínum til Ágústu Evu (og allra).

„Þess vegna var þetta kannski dáldið mikið fyrir þig, en það er líka allt í lagi. Auðvitað varstu hissa. En svo jafnarðu þig. Ef ekki þá geturðu kært Rvkdtr fyrir nauðgun. Vonandi lentirðu ekki í hjólastól (oj hjólastóll) eða fitnaðir við þetta (oj, fita)“

Ágústa Eva. (Og allir.) Textar um rassa, brjóst, bitches (tíkur), hoes (hórur), lick my lollypop, bitch (sjúgðu á mér kó...

Posted by Kolfinna Nikulásdóttir on Saturday, February 27, 2016

Tengdar fréttir

Ágústa Eva: Leitaði uppi kannabisræktanir með fíknó

Ágústa Eva segir frá vöktunum með fíkniefnadeild lögreglunnar. Hún segir samkeppnina í leikhúsunum mikla og að stundum verði baknag. Hún ræðir breytingar á einkalífi sínu og af hverju hún sagði upp í Þjóðleikhúsinu.

Ágreiningur um útgöngu Ágústu Evu

Meðan margir telja Ágústu Evu hafa rétt lágmenningu maklega fingurinn telja margir Silvíu Nótt ekki trúverðuga í slíkri gagnrýni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×