Handbolti

Ágúst valdi 16 sem fara til Póllands

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er vitaskuld í hópnum.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er vitaskuld í hópnum. vísir/ernir
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur valið 16 leikmenn sem fara til Póllands í nótt og spila þar tvo æfingaleiki við heimamenn.

Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir umspilsleikina gegn Svartfjallandi sem fram fara í sumar.

Fyrri leikurinn fer fram 29. maí kl. 15.30 að íslenskum tíma og sá síðari daginn eftir klukkan 16.00.

Eva Björk Davíðsdóttir, leikstjórnandi Íslands- og bikarmeistara Gróttu, er eini nýliðinn í hópnum.

Hún skoraði 64 mörk í úrslitakeppni Olís-deildarinnar þar sem Grótta stóð uppi sem sigurvegari eftir sigur á Stjörnunni í úrslitarimmunni.

Hópurinn:

Markverðir:

Florentina Stanciu, Stjarnan

Guðrún Ósk Maríasdóttir, FH

Aðrir leikmenn:

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Grótta

Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus

Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram

Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof

Eva Björk Davíðsdóttir, Grótta

Hildur Þorgeirsdóttir, Koblenz

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfoss

Kristín Guðmundsdóttir, Valur

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram

Rut Jónsdóttir, Randers

Sunna Jónsdóttir, BK Heid

Unnur Ómarsdóttir, Skrim

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Kongsvinger




Fleiri fréttir

Sjá meira


×