Ágúst Ólafur: Hótun Jóns Ásgeirs með ólíkindum 12. nóvember 2008 22:38 Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar Alþingis. „
Mér finnst það afar sérkennilegt ef menn telja sig geta hótað þingmönnum með þessum hætti, að þeir verði einfaldlega kærðir ef þeir spyrji ákveðinna spurninga," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar Alþingis. Í bréfi sem lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sendi Ágústi í kvöld er farið fram á að hann kalli forsvarsmenn ríkisbankanna þriggja ekki á sinn fund á föstudag. Greint var frá því í fréttum RÚV í gær að Ágúst hefði boðað til þessa fundar, meðal annars til að krefja forsvarsmenn bankanna svara við því hvort einhver banki hefði komið að fjármögnun vegna kaupa Jóns Ásgeirs á fjölmiðlahluta 365 í ljósi þróunar á fjölmiðlamarkaði. Ágúst Ólafur segist ekki ætla að verða við þessari kröfu Jóns Ásgeirs enda lúti málið að áhyggjum almennings og þingheims af því hvort hér á landi sé að myndast einokun á fjölmiðlamarkaði og hvort ríkisbankarnir hafi átt þátt í því. „En síðan er það bankanna að meta hvort bankaleynd sé fyrir hendi á þessum upplýsingum eða ekki. Ég er ekki að biðja menn um að brjóta lög en ég er að sinna mínu starfi sem alþingismaður," segir Ágúst. Hann segir að þingmenn hafi oft spurt spurninga og fengið neitun. Það sé ekkert nýtt að þingmenn fái ekki upplýsingar um efni sem leynd hvílir yfir. Ágúst Ólafur segir að hótun Jóns Ásgeirs sé með miklum ólíkindum og dregur í efa að hún eigi sér nokkuð fordæmi. „Og það má spyrja sig hvort að hann ætli að hóta fjölmiðlum kæru ef þeir spyrja spurninga," segir Ágúst. Rétt er að halda því til haga að eftir að fyrstu fréttir bárust af kaupum Jóns Ásgeirs á fjölmiðlahluta 365 hefur hann greint frá því að öllum hluthöfum í 365 yrði boðið að gerast aðilar að nýja félaginu, sem keypti fjölmiðlahlutann.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira