Enski boltinn

Aguero: Þetta var ekki brot

Dagur Lárusson skrifar
Sergio Aguero
Sergio Aguero vísir/getty
Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn Arsenal í deildarbikarnum í dag en Aguero skoraði fyrsta mark City.

Mikið hefur verið rætt um mark Aguero í leiknum og sumir vilja meina að Aguero hafi brotið á Calum Chambers áður en hann skoraði en Aguero sagði að svo var ekki.

„Fyrir mér þá var þetta ekki brot, aðeins smá snerting,“ sagði Aguero.

„Það er alltaf sérstök tilfinning fyrir mér að vinna bikar og það er tilfinning sem ég deili með liðsfélögum mínum. Við vorum mikið betri heldur en þeir og við sýndum það allan leikinn en núna verðum við að einbeita okkur að næsta leik sem er leikur í deildinni gegn þeim.“

Þetta var í fimmta sinn sem Manhcester City vinnur deildarbikarinn og í þriðja sinn sem Aguero vinnur hann með City.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×