Lífið

Ágreiningur í uppsiglingu vegna framlags Rússa í Eurovision

Birgir Olgeirsson skrifar
Rússar hafa tilkynnt um þátttöku sína í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, sem fer fram í Kænugarði í Úkraínu í maí næstkomandi. Mikil óvissa hafði verið um mögulega þátttöku Rússa í keppninni í ár en þeir voru heldur óánægðir með niðurstöðu keppninnar í fyrra.

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá því að Julia Samoilova verði fulltrúi Rússa í Kænugarði þar sem hún mun flytja lagið Flame is Burning.

BBC segir það hins vegar flækja málin að Samoilova hafi að eigin sögn komið fram á tónleikum á Krímskaga eftir að Rússar innlimuðu landsvæðið, sem áður tilheyrði Úkraínu, árið 2014.

Öryggislögreglan í Úkraínu hefur sett 140 rússneska listamenn á svartan listan en BBC segir Samoilova ekki á þeim lista.

Hún hefur sjálf staðfest að hafa sungið á Krímskaga árið 2015.

Miklar deilur vegna Krímskaga

Rússland og Úkraína hafa átt í miklum deilum frá því Rússar réðust inn á Krímskaga fyrir þremur árum.

Talskona úkraínsku öryggislögreglunnar, Olena Gitlyanska, sagði á Facebook að öryggislögreglan myndi skoða mál Samoilova og taka yfirvegaða ákvörðun þess efnis hvort hún fái að stíga á svið í Úkraínu.

Dimitry Peskov, talsmaður Rússlandsstjórnar, sagði við rússnesku fréttaveituna TASS að val Rússa á Samoilova væri ekki einhverskonar ögrun í garð Úkraínumanna.

„Við viljum reyna að forðast alla pólitík í Eurovision. Við teljum það algjörlega óásættanlegt þegar litið er til þróunar á þessari alþjóðlegu keppni,“ er haft eftir Peskov.

Rússar tilkynntu Samoilova sem fulltrúa sinn í ríkissjónvarpi þeirra í gær, einum degi áður en fresturinn til að skila umsókn um þátttöku rann út.

Ósáttir við sigurlagið í fyrra

BBC segir þingmenn í Rússlandi og þarlenda listamenn hafa kallað eftir því að Rússar taki ekki þátt í Eurovision í ár vegna sigurs Úkraínu. Rússar höfðu farið fram á að laginu 1944, sem söngkonan Jamala flutti, yrði vísað úr keppni vegna þess að það inniheldur pólitískan boðskap, sem er bannaður samkvæmt reglum Eurovision.

Svo fór að laginu var leyft að keppa og gáfu forsvarsmenn keppninnar þær útskýringar að texti lagsins væri byggður á sögulegum staðreyndum og var því ekki um pólitískan boðskap að ræða að þeirra mati. Rússar voru því augljóslega ekki sáttir en augljóst er að atriði Jamölu beindi sjónum að átökum á Krímskaga undanfarin ár.

Lag Jamölu, 1944, fjallaði um Krímsaga og þjóðernishreinsanir á því svæði sem Rússar stóðu fyrir undir stjórn Joseph Stalin. Jamala er Tartari en hún tileinkaði lagið langömmu sinni og fimm börnum hennar sem voru flutt af sovéskum hermönnum frá Krímskaga.

Hefur notað hjólastól frá barnæsku

Fulltrúi Rússa í ár, Samoilova, er á 27. aldursári en hún hefur notað hjólastól frá barnæsku vegna vaxandi vöðvarýrnunar.

Hún komst í úrslit X Factor í Rússlandi árið 2013 og söng á opnunarathöfn Vetrarólympíuleikanna í Sochi árið 2014.

Hún keppir í seinni undanriðli Eurovision fimmtudagskvöldið 11. maí næstkomandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×