Enski boltinn

Agbonlahor hættur sem fyrirliði botnliðsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Agbonlahor lék sinn fyrsta leik fyrir Villa árið 2006.
Agbonlahor lék sinn fyrsta leik fyrir Villa árið 2006. vísir/getty
Gabriel Agbonlahor hefur ákveðið að stíga til hliðar sem fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa.

„Ég hef afsalað mér fyrirliðabandinu þar sem ég á ekki skilið að gegna því hlutverki lengur. Að vera fyrirliði var mikill heiður fyrir mig og það er sárt að missa bandið,“ skrifaði Agbonlahor á Instagram-síðu sína.

Fyrirliðinn fráfarandi hefur verið mikið í fréttum að undanförnu en hann var settur í bann af Villa eftir að hann skellti sér út á lífið skömmu eftir að félagið féll niður um deild.

Áður var Villa búið að setja Agbonlahor á sérstakt æfingaprógramm til að reyna koma framherjanum í betra form.

Agbonlahor bað stuðningsmenn Villa einnig afsökunar á framferði sínu á Instagram.

„Ég vil byrja á að biðja alla stuðningsmenn Aston Villa afsökunar á framferði mínu undanfarnar vikur, sérstaklega á þessum erfiðu tímum,“ sagði Agbonlahor sem hefur aðeins skorað eitt mark í 15 deildarleikjum í vetur.

Villa er rótfast við botn ensku úrvalsdeildarinnar og löngu fallið. Liðið hefur aðeins náð í 16 stig í 35 leikjum á tímabilinu og tapað 10 síðustu leikjum sínum.

I want to begin with an apology to all Aston Villa fans for my actions in recent weeks, especially at a time when it is devastating for everyone involved with the club. I am stepping down as club captain with immediate effect as I do not deserve to carry out such a role anymore. This role was a huge honour to me and it hurts to have lost it. I have spent 16 years at Aston Villa and played some memorable games. My celebrations and passion, especially in games against local rivals shows my loyalty to Aston Villa. I am asking Aston Villa fans for forgiveness as I'm hurting as well despite reports and photos in the press making out otherwise. I agree my performances this season have not been good enough but I will be working hard to make things right! Up The Villa, Villa Till I Die! I would also like to add; numerous fake social media accounts and have been created using my name. This is my official Instagram and I do not use Twitter or Facebook.

A photo posted by Gabriel Agbonlahor (@ga11official) on


Tengdar fréttir

Petrov vill fá að spila aftur fyrir Aston Villa

Stiliyan Petrov, fyrrum fyrirliði Aston Villa, hefur ekkert spilað síðan árið 2013 þegar hann greindist með bráðahvítblæði, en óskar þess nú að fá að spila aftur með sínu liði.

Lescott er viðbjóður

Gamli harðjaxlinn Paul McGrath urðaði yfir Joleon Lescott, fyrirliða Aston Villa, eftir að Villa féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Lerner axlar ábyrgð á falli Villa

Hinn umdeildi eigandi Aston Villa, Randy Lerner, segir að það sé honum að kenna að félagið sé fallið úr ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×