Ágætar veiðisögur

Gagnrýni
Vísir Gagnrýni 16. desember 2011 11:00
Stórlaxar.
Stórlaxar.
Trausti Hafliðason skrifar:
Bækur. Stórlaxar. Þór Jónsson og Gunnar Bender. Tindur.

Bókin Stórlaxar eftir þá Þór Jónsson og Gunnar Bender er ein fjölmargra bóka um veiði sem komið hefur í bókaverslanir fyrir þessi jól. Bókin er viðtalsbók, þar sem rætt er við sjö veiðimenn. Hún er sjálfstætt framhald bókar sem kom út árið 1986 og nefndist einnig Stórlaxar. Höfundar þeirrar bókar voru Gunnar Bender og Eggert Skúlason.

Í nýju bókinni er rætt við Kristin Sigmundsson óperusöngvara, Ragnheiði Thorsteinsson dagskrárgerðarmann, Njörð P. Njarðvík, prófessor og rithöfund, Björn Kristin Rúnarsson leiðsögumann, Ólaf Rögnvaldsson framkvæmdastjóra, Guðmund Þ. Guðmundsson handboltaþjálfara og Árna Baldursson, sem oftast er kenndur við Lax-á.

Viðtalsformið er skemmtilegt í veiðibókum. Hver kafli er sjálfstæð frásögn, um fimmtán til tuttugu síðna löng, og því þægilegt að hafa bókina á náttborðinu og lesa einn kafla fyrir svefninn. Bókin er ágætlega skrifuð þó að textinn hefði sums staðar mátt flæða betur. Maður fær það stundum á tilfinninguna að spurningar hafi verið sendar til viðmælenda og þeim svarað skriflega. Þó veit ég ekkert hvort það er reyndin. Þetta á þó ekki við um alla kafla bókarinnar. Frásagnir þeirra Kristins, Njarðar og Árna standa upp úr. Árni Baldursson segir ekki bara veiðisögur heldur segir einnig frá því hvernig hann byggði upp fyrirtækið sitt Lax-á og er það einkar fróðleg lesning.

Útlit bókarinnar verður seint talið fallegt og dregur það bókina niður. Kápan er illa hönnuð og í besta falli klaufalegt hvernig sporður og haus laxanna eru skornir af á forsíðumyndinni. Annars eru fjölmargar myndir í bókinni, margar hverjar mjög skemmtilegar. Myndakaflinn hefði þó orðið betri ef myndirnar hefðu verið grisjaðar og lögð áhersla á að hafa færri en stærri myndir. Trausti Hafliðason

Niðurstaða: Bók sem veiðimenn munu vafalítið hafa gaman af því að lesa. Nauðsynlegt hefði verið að leggja meiri vinnu í útlit og nostra eilítið meira við textann.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Gagnrýni 24. mar. 2012 10:00

Rotturnar flýja frá borði

Niðurstaða:Spennandi fjármáladrama, drekkhlaðið úrvalsleikurum....  

Meira
Gagnrýni 22. mar. 2012 20:00

Rík af andrúmslofti og tilfinningu

Víkartindur er þemaplata sem fjallar um strand samnefnds fraktskips á Suðurlandi vorið 199...  

Meira
Gagnrýni 22. mar. 2012 14:00

Fínt popp úr verksmiðjunni

Lana Del Rey vakti heimsathygli í fyrra með laginu Video Games, sem var eitt af lögum ársi...  

Meira
Gagnrýni 21. mar. 2012 17:12

Orðheppinn götustrákur

Skemmtileg bók en þýðingin er hins vegar afspyrnu léleg og ættu þeir sem tök hafa á að nál...  

Meira
Gagnrýni 20. mar. 2012 20:00

Fallbyssufóður óskast

Alvöru hermenn leika aðalhlutverkin í þessari hörmulegu hasarmynd, sem virðist gerð til þe...  

Meira
Gagnrýni 20. mar. 2012 10:00

Fjörugt og fyndið en líka tragískt

Sérlega skemmtileg uppfærsla þar sem saman fer fagur söngur og skemmtileg leikstjórn. Á vi...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Ágætar veiðisögur