Handbolti

Afturelding og Selfoss með sigra

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mosfellingar lönduðu sætum sigri í kvöld.
Mosfellingar lönduðu sætum sigri í kvöld. vísir/vilhelm
Afturelding heldur toppsætinu í Olís-deild karla eftir nauman sigur, 25-26, á Gróttu í kvöld.

Grótta þjarmaði að Mosfellingum undir lokin en það dugði ekki til.

Ární Bragi Eyjólfsson skoraði sex mörk fyrir Aftureldingu og Þráinn var með sama markafjölda í liði Gróttu.

Selfoss fór í Garðabæinn og vann flottan sigur, 26-32, á Stjörnunni.

Elvar Örn Jónsson og Einar Sverrisson skoruðu sjö mörk fyrir Selfoss í kvöld. Garðar Sigurjónsson atkvæðamestur í liði Stjörnunnar með níu mörk.

Stjarnan áfram á botni deildarinnar en Selfoss komst upp í fimmta sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×